Helgin ágæt... eða svona...
21.2.2007 | 00:31
Það fór lítill hluti helgarinnar í að mála. Því miður! Las nú samt töluvert.
Minn Uppáhaldsdagur vikunnar er Sunnudagur . Veit ekki almennilega vegna hvers. Veit hins vegar að það er svo margt við sunnudaga sem er og hefur alltaf verið gott. Til að mynda er alltaf eitthvað sniðugt á dagskrá fjölmiðla. Einu sinni voru sýndar allar James Bond myndirnar á sunnudögum. Það var líka Bingó á Skjá einum. Núna er t.d. Tvíhöfði á rás 2, uppruni tegundanna, Slægur gaur fer með gígju (um æviferil Bob Dylans). Svo er einnig stór þáttur sem hefur verið mér ómissandi. Krossgáta fréttablaðsins. Tær Snilld.
Þegar ég er að skrifa þetta finnst mér eins og ég sé 47 ára en ekki 27 ára. Hvað um það... hehehe
Athugasemdir
krossgátur eru fastir liðir... heima hjá mér er rifist um krossgátuna :)
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, 21.2.2007 kl. 00:43
já maður! þarna yngdist ég niður í 37 ár
Björn Benedikt Guðnason, 21.2.2007 kl. 06:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.