Jæja....
19.3.2007 | 07:59
Ég skemmtileg helgi að baki. Og skemmtileg vika framundan
Á laugardaginn fór ég á deit. Svaka gaman og spennó allt saman Við fórum á leikritið "Leg" eftir Hugleik Dagsson. Vá Vá Vá! geggjað stykki og mæli ég óhikað með því. Áður en það byrjaði var ég að spjalla við stelpuna sem ég var á deitinu með. Ég sagði að ég var eiginlega jafn spenntur að sjá leikritið sjálft og að sjá hvort það yrði einhver sem ekki myndi klappa að leikritinu loknu. hehehe... það gerðist nú ekki
Á sunnudaginn fór ég í hadegismat hjá foreldrunum, læri með alles..... klassík kíkti svo í stutta kaffibollaheimsókn til systur minnar. Eftir það fór ég um allan Hafnarfjörð að taka myndir í bráluðu roki.... HAHAHA.... vá hvað ég hef lengi ætlað að gera það og vá hvað það var gaman. Alveg geggjað
ÞEgar ég kom heim, var ég hálflúinn eitthvað, tók til þess bragðs að hugleiða. Endurheimti fullt af orku þar.
Fór svo til vinkonu minnar í kyrjun. Klukkutíma! vá hvað þetta var góður dagur.
Ekki byrjaði þessi dagur verr. Vaknaði kl. 6:01. hugleiddi í hálftíma...... og hér er ég nú.
Vinna klukkan 15:45. Fyrsti dagurinn á nýja/gamla staðnum. Endalaust gaman!
Athugasemdir
Gott að þú ert með vinnutímann á hreinu. Veit ekki hversu gaman það verður. Þér verður þrælað út. Og alveg ömurlegur yfirmaður þarna
Magnús Helgi Björgvinsson, 19.3.2007 kl. 08:13
já sennilega og ég var búinn að heyra að yfirmaðurinn þarna er alger hrotti hahaha
Björn Benedikt Guðnason, 19.3.2007 kl. 12:08
bíddu bíddu, allt að gerast og ég veit ekki neitt, hmmm eitthvað bogið við þá mynd..
E.R Gunnlaugs, 19.3.2007 kl. 15:40
já maður(kona) mín allt að gerast sko
Af hverju ert samt með E.R. ?? mæli frekar með Emerentína og velkomin á moggabloggið skvís
Björn Benedikt Guðnason, 20.3.2007 kl. 00:17
Emerentíana (m. áherslu á TÍANA) er meiri ég en E.R, svona ef mér skyldi langa að bregða fyrir betri fætinum..
E.R Gunnlaugs, 20.3.2007 kl. 15:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.