Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Ja, hérna hér!

¨Nú er mér spurn.... getur lífið orðið dásamlegra? er til endalaust af hamingju? allavega hef ég fengið góðan skammt af hamingju undanfarið Grin 

Helgin hefur verið afskaplega viðburðarík. Búinn að fara í göngutúr á Gróttunni, alltaf jafn töfrandi að koma þangað í rokið Wink Fara á fundi! Fór í grill til foreldranna í gær og brunch í dag með Viktoríu og hennar fjölskyldu..... DÁSAMLEGT Smile

Úff... hef ekki tíma til að blogga... er of busy í hamingjunni Tounge


Fiðrildi

 

butterflies3withgaps400

...ég er með fiðrildi í maganum InLove


Lífið er dásamlegt

já, ég hef sagt þetta áður, segi það nú og mun segja það aftur. Í gær fór ég í göngutúr á Gróttu. Veðrið var náttúrulega alveg geggjað, þó var svolítið hvasst þarna upp frá. Labbaði upp að vitanum og tók svo ströndina Grin

Ég eyddi reyndar nokkuð stórum hluta dags niður í bæ. Merkilegt að sjá borgina okkar núna... sundurtætta eftir reiðskast Risans. Spurning hvort kallinn sé svona morgunfúll eða að hann sé hreinlega alkahólisti. En þetta er mjög flottur gjörningur Smile 

Já.... hahaha.... ég fór á Reykjavík Pizza company í gær. Kannski ekki frásögufærandi, nema fyrir þær sakir að ég borðaði pizzu með sniglum Grin mjög góð!

Ég vildi líka benda ykkur á massívt flottan flutning á laginu "To love somebody" m. BeeGee's! Súperflott Wink


JíHAAAA

Jamm..... hef ekkert gefið mér tíma í að blogga Errm en það er í góðu lagi, hef haft svo mikið að gera LoL

ÉG var að kaupa mér tölvu.... enga hip hopp massív neitt....... en er ofboðslega glaður með hana Smile

Lífið er geggjað þessa dagana, allt á uppleið. Eina leiðin....

Vá hvað ég er ekki að nenna að blogga....... ætla út í göngutúr.....

later....


stjörnuspá

Meyja: Hamingjusamt líf er fullt af gleði og töfrum. Af hverju gleyma þessu flestir? Ekki festast í enn einni rútínunni, veldu frekar áhugaverða og aðdáunarverða leið í lífinu.


JAHAHA......... dásamlegt og alveg í takt við daginn Smile

jæja...jaíja

Já, það er margt og mikið búið að gerast hjá mér undanfarið Woundering Margt skemmtilegt og annað minna skemmtilegt...... En aðallega þó skemmtilegt, og jafnvel hressandi....BAWHAHAHA Grin

Hvenær fáum við veðrið sem hefur verið fyrir austan? hvað er málið með þetta rok hérna? hjá hverjum sváfu þeir til að fá þetta veður???.. tja, mér er spurn...

Nú styttist heldur betur í kosningar og þá fer hugurinn á kreik... hvað á að kjósa? ég hef aldrei verið neitt sérstaklega hliðhollur neinum flokki en hef jafnan kosið til vinstri hvort heldur sem er til Alþingis eða sveitarstjórna. Ég taldi mig hafa fundið flokk sem myndi leysa þessa krísu fyrir mig. Íslandshreyfinguna. Hins vegar hefur hún ekki staðið sig sem skyldi að mínu mati. Kannski voru þeir of seinir af stað? Veit ekki. Því stend ég nú á svipuðum krossgötum og fyrir allar aðrar kosningar sem ég hef greitt atkvæði mitt í, hingað til.

Ég er búinn að ákveða að halda sýningu á verkunum mínum í sumar. Hvar, hvenær og hvernig verður auglýst síðar. Hins vegar er ljóst að ykkur verður öllum boðið Tounge


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband