jæja...jaíja

Já, það er margt og mikið búið að gerast hjá mér undanfarið Woundering Margt skemmtilegt og annað minna skemmtilegt...... En aðallega þó skemmtilegt, og jafnvel hressandi....BAWHAHAHA Grin

Hvenær fáum við veðrið sem hefur verið fyrir austan? hvað er málið með þetta rok hérna? hjá hverjum sváfu þeir til að fá þetta veður???.. tja, mér er spurn...

Nú styttist heldur betur í kosningar og þá fer hugurinn á kreik... hvað á að kjósa? ég hef aldrei verið neitt sérstaklega hliðhollur neinum flokki en hef jafnan kosið til vinstri hvort heldur sem er til Alþingis eða sveitarstjórna. Ég taldi mig hafa fundið flokk sem myndi leysa þessa krísu fyrir mig. Íslandshreyfinguna. Hins vegar hefur hún ekki staðið sig sem skyldi að mínu mati. Kannski voru þeir of seinir af stað? Veit ekki. Því stend ég nú á svipuðum krossgötum og fyrir allar aðrar kosningar sem ég hef greitt atkvæði mitt í, hingað til.

Ég er búinn að ákveða að halda sýningu á verkunum mínum í sumar. Hvar, hvenær og hvernig verður auglýst síðar. Hins vegar er ljóst að ykkur verður öllum boðið Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband